
Sama verð um land allt - Bónus leggur mestu áherslu á að bjóða upp á lægsta mögulega vöruverð fyrir neytendur.
Það er Bónus mikilvægt að halda því trausti sem almenningur hefur sýnt verslunarkeðjunni í gegnum árin og eitt af leiðarljósum Bónus hefur ávallt verið að hafa álagningu sem lægsta. Bónus býður sama verð í öllum sínum verslunum um land allt sem reynst hefur afar dýrmætt gagnvart neytendum. Það sannast ítrekað í verðkönnunum að Bónus býður lægsta vöruverð á Íslandi, þrátt fyrir harðnandi samkeppni.